Sport Company ehf. 
kt: 501111-1470 vsk númer:109861

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Við getum því miður ekki ábyrgst að vara sé alltaf til á lager þó svo hún sé auglýst á heimasíðu.
Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
3 afhendingarmátar eru í boði,  að sækja í verslun Errea, fá vörurnar sendar á næsta pósthús eða sent heima með Íslandspósti.  Verð á heimsendingu er samkvæmt verðskrá Íslandspósts.  Öllum heimsendum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.  Sport Company ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.  Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Sport Company ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Ekki er hægt að skila né skipta merktum vörum.  Vinsamlegast hafið samband við Sport Company ehf. með spurningar.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. 

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. 

Almennt
Sport Company ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum nema lög krefjist þess.