Þvottur og meðferð


Rétt meðferð eykur endingartíma.

Þess vegna er mikilvægt að fylgja þeim leiðbeiningum sem eru á miða vörunnar.

Hér að neðan eru helstu upplýsingar varðandi þvott á Errea fatnaði


  • Tæma og loka vösum fyrir þvott
  • Ekki þvo fatnað með hvössum hornum sem geta rifið aðrar flíkur
  • Þvo merktan fatnað á röngunni
  • Athugaðu miðann innan í vörunni fyrir þvottaleiðbeiningar
  • Keppnistreyjur með eða án merkinga má ekki þvo á hærri hita en 30°
  • Nota viðurkennt þvottaefni
  • Ef merkingar eru á fatnaði skal forðast að nota mýkingarefni


  • Íþróttafatnað má alls ekki setja í þurrkara
  • Hengdu flíkina upp þannig að ekki myndist brot í merkingum
  • Franskur rennilás getur eyðilagt fatnað